Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. október 2017 var lögð fram fyrirspurn Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 2. október 2017, um breytingu á deiliskipulagi Elliðaárdals vegna lóðarinnar nr. 20 við Rafstöðvarveg sem felst í að afmörkuð er lóð undir félagsheimili Orkuveitu Reykjavíkur. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.