Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa að deiliskipulagi fyrir Elliðaárvog/Ártúnshöfða, svæði 2. - Sævarhöfði á Ártúnshöfða. Svæðið er um það bil 18 ha að stærð. Tillagan gerir ráð fyrir uppbyggingu allt að 1917 íbúða, safnskóla og skóla, verslunar- og þjónustusvæði, almenningsrýmum, borgarlínu og borgarlínustöð. Samhliða skipulagsgerðinni er unnið að vistvottun skipulagsins samkvæmt forsendum vistvottunarkerfisins Breeam Communities.
Tillagan er lögð fram í samræmi við eftirfarandi gögn ráðgjafa frá Arkís arkitektum:
Almennri greinargerð fyrir svæði 2 (og svæði 1) dags. 4. júní 2021
Greinargerð og skilmálar fyrir byggingar og lóðir fyrir svæði 2, dags. 4. júní 2021
Deiliskipulags- og skýringaruppdrættir dags. 4. júní 2021
Einnig er lögð fram Hönnunarhandbók fyrir opin svæði, inngarða og almenningsrými dags. 4. júní 2021, unnin af Landslagi, samgöngumat Verkís dags. júní 2021, Húsakönnun fyrir Ártúnshöfða svæði 1-4 dags. apríl 2021, hljóðvistarskýrsla Verkís dags. maí 2021, umhverfisskýrsla Verkís dags. maí 2021 og mengunarrannsókn Verkís dags. maí 2020.