Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. mars 2021 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 15. mars 2021 um framkvæmdaleyfi vegna 1. áfanga landfyllingar í Elliðaárvogi. Einnig er lagt fram bréf Verkís dags. 10. mars 2021 ásamt uppdrætti dags. 11. mars 2021, álit Skipulagsstofnunar dags. 17. mars 2017 um mat á umhverfisáhrifum, matsskýrsla Mannvits dags. í desember 2016 og skýrsla Hafrannsóknarstofnunar dags. í mars 2021 um rannsóknir á laxfiskum í ósi Elliðaáa og Leirvogsár. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. mars 2021.