Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 6. janúar 2011 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. desember 2010 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja gróðurhús á þaki bílskúrs við einbýlishúsið á lóð nr. 26 við Ránargötu. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 12. janúar 2011.