Lögð fram fyrirspurn Davíðs Stefánssonar, dags. 16. nóvember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Laugaráss vegna lóðarinnar nr. 12 við Dyngjuveg sem felst í að byggja bílskúr, samkvæmt uppdr. Vektor- hönnun og ráðgjöf dags. 14. nóvember 2022. Einnig er lagt fram bréf hönnuðar dags. 16. nóvember 2022.