Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. mars 2019 var lögð fram fyrirspurn
Róða ehf.
dags. 19. mars 2019 um breytingu á deiliskipulagi Breiðholts III vegna lóðarinnar nr. 2-18 við Drafnarfell sem felst í aukningu á byggingarmagni lóðarinnar þannig að heimilt verði að hækka húsið nr. 14-18 við Drafnarfell í allt að sjö hæðir. Gert verði ráð fyrir fjórum íbúðum á hverri hæð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. apríl 2019.