Lögð fram fyrirspurn Róða ehf. dags. 19. mars 2019 um breytingu á deiliskipulagi Breiðholts III vegna lóðarinnar nr. 2-18 við Drafnarfell sem felst í aukningu á byggingarmagni lóðarinnar þannig að heimilt verði að hækka húsið nr. 14-18 við Drafnarfell í allt að sjö hæðir. Gert verði ráð fyrir fjórum íbúðum á hverri hæð.