Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. febrúar 2012 þar sem sótt er um leyfi til þess að rífa svalir, byggja viðbyggingu að suður- og vesturhlið og nýta þak hinnar nýju viðbyggingar sem svalir íbúðar annarrar hæðar í húsinu á lóðinni nr. 8 við Kambsveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 8. júní 2012 fylgir erindinu. Umsögn skipulagsstjóra (v. fyrirspurnar) dags. 7. júní 2012. fylgir erindinu. Ný skráningartafla fylgir erindinu. Stærð: Stækkun, viðbygging 40,6 ferm. og 112,5 rúmm. Gjald kr. 8.500 + 9.563
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Norðurbrún 24, Kambsvegi 6 og 10 og Dragavegi 11.