Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. október 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. október 2016 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í gerð íbúðar í kjallara í húsi á lóð nr. 8 við Akrasel. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. október 2016.
Stækkun A-rými 67,1 ferm., 164,4 rúmm. Gjald kr. 10.100