Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. desember 2011 þar sem sótt er um leyfi til breytinga innanhúss sem felast í því að fjölga íbúðum á 2. og 3. hæð úr fjórum í tíu á hvorri hæð, breyta hlutverki 1. hæðar þannig að helmingur verslunarrýmis verði fjórar íbúðir, en helmingurinn óbreyttur, breyta kjallara með geymslum og þvottahúsum til samræmis við þetta og færa sorpgeymslur út á lóð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 18-20 við Dunhaga. Meðfylgjandi er afrit af bréfi skipulagsstjóra Reykjavíkur dags. 17. nóvember 2011 Gjald kr. 8.000