Lögð fram umsókn
Kurt og Pí ehf.
dags. 19 ágúst 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.173.0 vegna lóðarinnar nr. 63 við Laugaveg. í breytingunni felst að heimilt er að gera þakvalir á risíbúð sem liggur við Vitastíg, samkvæmt uppdrætti Kurt og pí ehf. dags. 19. apríl 2019.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.