Á fundi skipulagsfulltrúa 15. júlí 2016 var lögð fram umsókn
Kurt og Pí ehf.
, mótt. 25. maí 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.173.0 vegna lóðar nr. 63 við Laugaveg. Í breytingunni felst að breyta risi í þeim hluta hússins sem snýr að Vitastíg í íbúð, lengja núverandi kvist á norðvestur hlið og gera innbyggðar svalir á þakinu, samkvæmt uppdrætti
Kurt og Pí ehf.
, dags. 18. maí 2016. Einnig er lagt fram samþykki meðlóðarhafa, dags. 1. júní 2015. Erindinu var vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa og er nú lagt fram að nýju.