Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Björns Þórs Karlssonar dags. 19. júní 2018 ásamt bréfi dags. 19. júní 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 11-13 við Skipholt sem felst í að heimila rekstur gististaðar í flokki II á 2. og 3. hæð hússins. Til vara er óskað eftir að heimilað verði að vera með gististað í flokki II á 3. hæð hússins. Einnig er lagt fram samþykki hluta eigenda dags. 10. október 2016. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. júní 2018.