Lögð fram fyrirspurn Ásgeirs Ásgeirssonar dags. 30. ágúst 2013 varðandi uppbyggingu á lóðinni nr. 11-13 við Skipholt. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. september 2013.
Svar
Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið á eigin kostnað, með vísan til niðurstöðu í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. september 2013.