Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. júlí 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja flugskýli, mhl. 07, fyrir tvær þyrlur og gera tengibygginu á tveimur hæðum, sem sem tengist núverandi flugskýli og á að hýsa skrifstofur, mötuneyti starfsmanna, búningsklefa og hvíldarrými fyrir stafsfólk, á lóð nr. 68B við Nauthólsveg flugvöllur. Bréf frá umsækjanda dags. 29. júní 2021 fylgir. Stærð: 2.881,6 ferm., 18.740,7 rúmm. Gjald kr. 12.100