Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. júlí 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. júlí 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja flugskýli, mhl. 07, fyrir tvær þyrlur og gera tengibygginu á tveimur hæðum, sem sem tengist núverandi flugskýli og á að hýsa skrifstofur, mötuneyti starfsmanna, búningsklefa og hvíldarrými fyrir stafsfólk, á lóð nr. 68B við Nauthólsveg flugvöllur. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt ram að nýju. Bréf frá umsækjanda dags. 29. júní 2021 fylgir. Stærð: 2.881,6 ferm., 18.740,7 rúmm. Gjald kr. 12.100