Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. desember 2021 var lögð fram fyrirspurn Valdimars Hólms Skarphéðinssonar dags. 22. október 2021 um breytingu á notkun bílskúra á lóð nr. 36 við Barmahlíð í íbúðir, samkvæmt skissum á byggingarnefndarteikningu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. desember 2021.