Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, mótt. 24. ágúst 2016, um að nota jarðveg úr uppgreftri til jarðvegsmótunar á íþróttasvæði ÍR s.s. í manir til að afmarka svæði félagsins að norðanverðu, sem yfirborðslan fyrir æfingasvæði félagsins vestan við núverandi knattspyrnuvelli og tryggja um leið öryggi barna eða annarra sem leið eiga um svæðið á meðan byggingarframkvæmdir standa yfir. Einnig lagt fram bréf Íþróttafélags Reykjavíkur, dags. 23. ágúst 2016 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. september 2016.