Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga
KRADS ehf.
, dags. 1. desember 2016, að deiliskipulagi svæðis í vestanverðum Fossvogi sem afmarkast af Fossvogsvegi, Árlandi og göngustígum. Megintilgangur með gerð deiliskipulagsins er að fylgja eftir áformum aðalskipulags Reykjavíkur 2010-2030 um mótun byggðar í vestanverðum Fossvogi og stuðla að hæfilegri uppbyggingu á svæðinu. Horft er á svæðið í heild og uppbygging hugsuð í samhengi við nágrennið, þannig að hún styrki heildaryfirbragð svæðisins. Tillagan var auglýst frá 8. febrúar til og með 22. mars 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Haukur Örn Gunnarsson, dags. 21. mars 2017, Eva B. Helgadóttir, dags. 22. mars 2017, Arnar Ólafsson, Sigurður Morizsson og Halldór Geir Jensson f.h. eigendur að Fossvogsbletti 2 og 2A, dags. 22. mars 2017, Guðjón Þorkelsson, dags. 22. mars 2017 og Páll Guðjónsson og Þorkell Guðjónsson, dags. 22. mars 2017.