Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. nóvember 2016 var lögð fram fyrirspurn
Studio F ehf.
, mótt. 4. nóvember 2016, um að hækka þak húsanna á lóð nr. 6 við Bjargarstíg og gera rishæð og þaksvalir á viðbyggingu til suðurs, samkvæmt uppdr.
Studio F ehf.
, dags. 24. október 2016. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 17. janúar 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18. janúar 2017.