Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. september 2020 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN037192 þannig að húsi er skipt í tvær íbúðir, innanhússstiga snúið 180°, gluggasetningu breytt og hurðum bætt við á norður- og vesturhlið og bílastæði, stoðvegg og tröppum bætt við á vesturhluta lóðar nr. 8 við Iðunnarbrunn. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. október 2020.
Stækkun; 3,8 ferm., Samtals A-rými: 402,5 ferm., 1.225,3 rúmm.
B-rými: 17,1 ferm. Gjald kr. 11.200