Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. júní 2017 var lögð fram fyrirspurn Hallgríms Friðgeirssonar, mótt. 24.maí 2017, um að rífa húsið á lóð nr. 31 við Bræðraborgarstíg og byggja nýtt hús sambærilegt að stærð og gerð og húsið að Hávallagötu 46-48, samkvæmt uppdr. Studio Halla Friðgeirs og co, ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. júní 2017.