Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. ágúst 2020 var lögð fram fyrirspurn Stefáns Albertssonar dags. 25. mars 2020 ásamt greinargerð dags. 15. maí 2020 um að setja ledd ljóskastara á norðurgafl hússins nr. 52 á lóð nr. 52-56 við Háaleitisbraut. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2020.