Lögð fram umsókn Páls Kristjáns Svanssonar dags. 13. apríl 2022 um nýtt deiliskipulag fyrir lóðirnar nr. 10 og 12 við Holtsgötu og 16 við Brekkustíg. Í tillögunni felst uppbygging íbúðarhúsnæðis á lóð, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. (skuggavarp og snið) Axels Kaaber dags. 10. apríl 2022. Einnig er lögð fram fornleifaskrá og húsakönnun Borgarsögusafns Reykjavíkur, skýrsla nr. 214, og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 25. apríl 2022.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021.