Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 11. desember 2015 var lögð fram fyrirspurn Páls Kristjáns Svanssonar, mótt. 2. desember 2015, um að rífa húsið á lóð nr. 10 við Holtsgötu og byggja lítið fjölbýli á lóðunum nr. 10 og 12 við Holtsgötu upp að gafli hússins á lóð nr. 12. Einnig eru lagðar fram teikningar Sigurðar Gústafssonar ark., dags. 17. júlí 2007 og greinargerð Páls Kristjáns Svanssonar, dags. 2. desember 2015. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.