Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 31. júlí 2015 var lögð fram fyrirspurn Vignis Guðjónssonar, dags. 20. júlí 2015 um hvort breyta megi geymsluskúr í vinnustofu og stækka hann á lóð nr. 18 við Lokastíg. Fyrirspurnin er framsend til skipulagsfulltrúa af afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 28. júlí sl. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. ágúst 2015.