Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. júní 2014 þar sem sótt er um leyfi til að hækka mæni og bæta við kvistum á íbúðarhús á lóð nr. 10 við Brekkustíg. Stækkun: 24,7 ferm., 60,6 rúmm. Gjald 9.500
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Brekkustíg 8 og 12, Öldugötu 44, 47, 50 og 51, þegar lagfærðir uppdrættir hafa borist í samræmi við umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. júlí 2014.