Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. október 2020 var lögð fram fyrirspurn Páls V Bjarnasonar dags. 2. október 2020 um breytingu á deiliskipulagi Lokastígsreits 3 vegna lóðarinnar nr. 27 við Þórsgötu sem felst í að hækka þak og setja kvisti á fram- og bakhlið hússins ásamt því að setja svalir á bakhlið hússins með tröppum niður í garð, samkvæmt uppdr. P ARK teiknistofu sf. dags. 2. október 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. og er nú lagt fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. október 2020.