Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. desember 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. desember 2019 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN055618 og fjölga íbúðum úr sex í átta, tvær stúdíóíbúðir, fimm tveggja herbergja íbúðir og ein fjögurra herbergja á 3. hæð húss á lóð nr. 6 við Brautarholt, samkvæmt uppdr. T.ark. Arkitekta ehf. dags. 26. nóvember 2019. Erindinu var vísað til meðferðar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara vegna lóðamarkamála og er nú lagt fram að nýju ásamt netpósti deildarstjóra lögfræðideildar hjá skrifstofu borgarstjóra og borgarritara dags 23. janúar 2020. Einnig var málinu vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. janúar 2020.
Erindi fylgir mæliblað 1.241.2 dags. 13. október 1997, afrit af umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. nóvember 2019 og bréf hönnuðar dags. 26. nóvember 2019. Gjald kr. 11.200