Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 18. september 2015 var lögð fram fyrirspurn Elmars Freys Kristjánssonar og Viggó Júlíusarsonar, mótt. 13. ágúst 2015, um að setja svalir á húsið á lóð nr. 18-20 við Lofnarbrunn. Fyrirspurnin er framsend af afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 25. ágúst 2015. Fyrirspurnin er nú lögð fram að nýju ásamt bréfi til fyrirspyrjanda dags. 16. október 2015.