Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Foldahverfis 4. og 5. áfanga vegna lóðarinnar nr. 33 við Frostafold. Í breytingunni felst að skilgreindir eru tveir byggingarreitir. Innan breytts byggingarreits núverandi húss má auka byggingarmagn. Í suðausturhorni lóðar er aðskilinn byggingarreitur afmarkaður fyrir yfirbyggða sorp- og hjólageymslu. fyrirkomulag bílastæða og aðkoma að lóð er einnig breytt, samkvæmt uppdr. VSÓ rágjafar dags. 9. apríl 2021.