Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. janúar 2017 þar sem sótt er um samþykki á þegar gerðum breytingum, sem felast í að þaki var breytt í upphafi sem og gluggum, á sjöunda áratugnum var innréttuð íbúð í kjallara og múrkerfi og einangrun seinna bætt á fjölbýlishúsið á lóð nr. 12 við Básenda. Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags.. 15.11. 2016. Gjald kr. 10.100