Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. september 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. september 2019 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja 8 íbúða steinsteypt fjölbýlishús á 4 hæðum á lóð nr. 23 við Freyjubrunn. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. september 2019.
Stærðir: A- rými: 793.7 ferm., 2411.6 rúmm., B-rými: 37.2 ferm., 104.1 rúmm. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 13. ágúst 2019, bréf undirritað e.u. borgarstjórans í Reykjavík og varðar samþykkt á deiliskipulagsbreytingu dags. 7. mars 2019, afrit af endurútgefnu byggingarleyfi dags. 17. ágúst 2017. mæliblað 2.695.4 endurútgefið 18. júní 2019 og hæðablað 2.695.4, útgáfa B3 dags. september 2009. Gjald kr. 11.200