Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. nóvember 2020 var lögð fram fyrirspurn
Grímu arkitekta ehf.
dags. 8. október 2020 ásamt bréfi dags. 8. október 2020 um breytingu á deiliskipulagi Sogavegar - Rauðagerðis vegna lóðarinnar nr. 9 við Borgargerði sem felst í færslu og stækkun á byggingarreit fyrir bílskúr, samkvæmt skissu á yfirlitsmynd og mæliblaði. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. nóvember 2020.