Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 15. maí 2015 var lögð fram fyrirspurn Gústavs Axels Gunnlaugssonar dags. 7. maí 2015 varðandi rekstur veitingahúss í flokki II á fyrstu hæð og kjallara hússins á lóð nr. 4 við Bergstaðastræti. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. maí 2015.