Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. júní 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. júní 2017 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki II tegund C sem verður tengdur matvinnslu sem er á annarri hæð hússins á lóð nr. 4 við Bergstaðastræti. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skiplagsfulltrúa, dags. 7. júlí 2017.
Gjald kr. 11.000