Lögð fram umsókn Kanon arkitekta dags. 9. maí 2018 fh. byggingarfélags námsmmanna varðandi breytingu á deiliskipulagi námsmannagarða við Klausturstíg 1-11 og Kapellustígur 1-13 . Í breytingunni felst að fjölga íbúðum um 52 í fjórum nýjum húsum á lóðinni nr 1- 11 við Klausturstíg og 1-13 við Kapellustíg ásamt því að heimila byggingu geymslu fyrir starfssemi byggingarfélags námsmanna, samkvæmt uppdr. Kanon arkitekta ehf. dags. 9. maí 2018.