Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. apríl 2020 var lögð fram umsókn Kristján Ásgeirsson dags. 26. mars 2020 ásamt bréfi dags. 16. mars 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.190.2, Njálsgötureits 2, vegna lóðarinnar nr. 36 við Njálsgötu. Í breytingunni felst fyrst og fremst að leiðrétta ósamræmi í gildandi deiliskipulagi hvað varðar uppbyggingarmöguleika lóðarinnar og staðfesting á að byggja megi við og hækka framhúsið nr. 36 að lóðarmörkum Njálsgötu 38 án þess að fjarlægja þurfi bakhúsið nr. 36B. Heildarfjöldi íbúða á lóð verður allt að 7 talsins, gera má ráð fyrir m.a. svölum, kvistum án þess að breyta þurfi deiliskipulagi o.fl., samkvæmt uppdr. ALARK arkitekta ehf. dags. 16. mars 2020. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 5. febrúar 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Vísað til skipulags- og samgönguráðs þegar uppfærð gögn berast embættinu. Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1231/2018.