Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. maí 2019 var lögð fram fyrirspurn Kristjáns Ásgeirssonar mótt. 10. október 2017 ásamt bréfi dags. 10. október 2017 um að stækka og hækka fremri húsið á lóð á lóð nr. 36 við Njálsgötu og halda bakhúsinu á lóðinni, samkvæmt uppdr. Alark arkitekta ehf., dags. 10. október 2017. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 5. febrúar 2018 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. febrúar 2018. Jafnframt er lagt fram bréf Brynjars Harðarsonar f.h. SV50 ehf. dags. 22. febrúar 2019. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.