Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Zeppelin arkitekta dags. 1. júlí 2015 um breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis vegna Hraunteigs 3. Í tillögu A (4-8 íbúðir) felst uppbygging lóðar, bílskúr stækkaður og hækkaður um eina hæð og breytt í íbúðarhúsnæði, byggingareitur stækkaður og gert ráð fyrir tveggja hæða húss. Í tillögu B (3-6 íbúðir) er bílskúr fjarlægður, byggingareitur stækkaður til vesturs og gert ráð fyrir tveggja hæða húsi með þakhæð. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. júlí 2015.