Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 5. desember 2014 var lögð fram fyrirspurn Orkuveitu Reykjavíkur - Veitur ohf. dags. 28. nóvember 2014 varðandi sameiningu lóðanna nr. 47, 47A og 49 við Friggjarbrunn. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Einnig lagt fram svar skipulagsfulltrúa í tölvupósti dags. 10. desember 2014.