Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. febrúar 2014 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta íbúðarhúsi í gistiheimili í flokki II fyrir allt að tíu gesti í húsi nr. 2B, matshluta 02, á lóðinni nr. 2 við Grettisgötu. Móttaka gististaðarins verður staðsett í gistiheimilinu að Grettisgötu 2A, sömu eigendur eru að báðum húsunum. Samþykki meðlóðarhafa dags. í desember 2013 fylgir erindinu. Gjald kr. 9.500