Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. nóvember 2017 var lögð fram fyrirspurn Geirs Steinþórssonar mótt. 24. október 2017 um að setja svalir á húsið á lóð nr. 2A við Grettisgötu út á móti Klapparstíg, samkvæmt uppdr. Urban arkitekta ehf. dags. 18. október 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. nóvember 2017.