Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. apríl 2017 var lögð fram fyrirspurn Þorkels Snorra Sigurðssonar, mótt. 6. apríl 2017, um að breyta notkun hússins á lóð nr. 2 við Grettisgötu úr íbúðarhúsnæði í gistiheimili (gististað) í flokki II. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. maí 2017.