Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. maí 2022 var lögð fram fyrirspurn Krads ehf. dags. 12. apríl 2022 um breytingu á notkun geymslu sem staðsett er á jarðhæð við hlið hússins á lóð nr. 24 við Rauðarárstíg úr geymslu í íbúð, samkvæmt tillögu Krads ehf. dags. 24. febrúar 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. júní 2022.