Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Hlutdeildar, deild vinnudeilusjóðs dags. 20. apríl 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Borgartúns, reitir 1.217 - 1.219 vegna lóðarinnar nr. 35-37 við Borgartún. Í breytingunni felst að lóðinni er skipt í tvær lóðir ásamt breytingu á byggingarmagni, samkvæmt uppdrætti GP-arkitekta ehf. dags. 24. maí 2011. Tillagan var auglýst frá 6. júlí til og með 17. ágúst 2011. Engar athugasemdir bárust.