Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. október 2015 þar sem sótt er um leyfi til að breyta þakgluggum, byggja kvisti og svalir á rishæð, byggja anddyri með svölum á þaki á norðurhlið, breyta útitröppum og klæða með koparklæðningu þak fjölbýlishúss á lóð nr. 44 við Freyjugötu. Erindi var grenndarkynnt frá 25. nóvember til og með 23. desember 2015. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm. Gjald kr. 9.823