Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. apríl 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja garðskála sem verður að hluta til staðsteyptur og að hluta til úr gleri á lóð nr. 44 við Freyjugötu. Undirritað bréf fylgir erindinu. Samþykki frá meðeigenda nr. 44 , samþykki hluta eiganda nr. 42 og samþykki frá hluta af eigendum Mímisvegar 8 fylgir. Stærð garðskála er 40,0 ferm., 108,7 rúmm. Gjald kr. 11.000