Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa frá 19. mars 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. mars 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að fjölga eignum með því að breyta íbúð 0201, sem er á tveimur hæðum, í tvær íbúðir, 0201 og 0301 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 55 við Hofsvallagötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. mars 2021.
Erindi fylgir samþykki eigenda íbúða 0001 og 0101 á afriti af teikn. nr. 1 og 2 dags. 25. febrúar 2021 og mæliblað1.543.0 síðast breytt 7. ágúst 1978. Gjald kr. 12.100