Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. mars 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að fjölga eignum með því að breyta íbúð 0201, sem er á tveimur hæðum, í tvær íbúðir, 0201 og 0301 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 55 við Hofsvallagötu. Erindi fylgir samþykki eigenda íbúða 0001 og 0101 á afriti af teikn. nr. 1 og 2 dags. 25. febrúar 2021 og mæliblað1.543.0 síðast breytt 7. ágúst 1978. Gjald kr. 12.100